Áfangamarkmið við lok 4. bekkjar í lífsleikni 
          
          Sjálfsþekking, samskipti, sköpun og lífsstíll 
          
          Nemandi á að 
          - geta greint og lýst ýmsum tilfinningum, t.d. hamingju, 
          gleði, sorg, reiði
          - gera sér grein fyrir að í umhverfinu eru margvísleg 
          áreiti, jákvæð og neikvæð, sem geta 
          haft áhrif á líf hans
          - virða og átta sig á tilgangi leikreglna í 
          mannlegum samskiptum
          - geta sett hugtakið jafnrétti í margbreytilegt samhengi
          - geta tjáð hugsanir, skoðanir, tilfinningar og væntingar
          - hafa lært leiðir til að efla samskiptafærni sína 
          sem felur meðal annars í sér
          o færni í samvinnu
          o að sýna tillitssemi
          o að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
          o að setja sig í spor annarra
          o að hlusta á aðra og sýna kurteisi
          - gera sér grein fyrir mismunandi fjölskyldugerðum og 
          stöðu einstaklinga innan þeirra
          - hafa áræði til spyrja gagnrýninna spurninga
          - sýna frumkvæði og sköpun í vinnubrögðum
          - vita hvað átt er við með markmiðum og hvernig 
          fólk notar markmið til að ná því 
          sem að er stefnt
          - þekkja líkamlegar þarfir sínar fyrir næringu, 
          hvíld, hreyfingu og hreinlæti og leitast við að 
          koma til móts við þær
          - gera sér grein fyrir að ekki eru allir eins og tileinka 
          sér þannig virðingu fyrir sérstöðu 
          annarra hvað varðar útlit, klæðaburð og 
          smekk
          Samfélag, umhverfi, náttúra og menning 
          Nemandi á að 
          - kunna skil á umferðarreglum fyrir gangandi vegfarendur
          - geta bent á slysagildrur í umhverfinu, á heimilum 
          og þekki varasöm efni sem þar kunna að vera geymd
          - geta leitað eftir upplýsingum og leiðbeiningum til 
          að rata um umhverfi sitt, t.d. munnlegum fyrirmælum eða 
          vegvísum