|  | 
   
    |  | 
   
    |   Jólasveinar einn og átta Jólasveinar einn og átta,ofan komu af fjöllunum.
 Í fyrra kvöld, þá fór ég að 
        hátta,
 þeir fundu hann jón á Völlunum.
 Ísleif hittu þeir utan gátta
 og ætluðu´ að færa hann tröllunum;
 en hann beiddist af þeim sátta
 óvægust körlunum,
 en þá var hringt öllum jólabjöllunum.
     | Það á að gefa 
        börnum brauð  Það á að gefa börnum 
        brauðað bíta í á jólunum,
 kertaljós og klæðin rauð,
 svo komist hún úr bólunum;
 væna flís af feitum sauð,
 sem fjalla gekk á hólunum.
 Nú er hún gamla grýla dauð,
 gafst hún upp á rólunum.
 | 
   
    |   Adam áti syni sjö Adam átti syni sjö,sjö syni átti Adam.
 Adam elskaði alla þá
 og allir gerðu sem Adam:
 Hann sáði,
 hann sáði
 hann klappaði saman lófunum,
 hann stappaði niður fótunum,
 hann liðkaði sig í lendunum
 og sneri sér í hring.
     | Jólasveinar ganga um gólf Jólasveinar ganga um gólfmeð gildan staf í hendi.
 Móðir þeirra sópar gólf
 og hýðir þá með vendi.
 | 
   
    | Ég sá mömmu kissa 
        jólasvein Ég sá mömmu kyssa jólasveinvið jólatréð í stofunni í gær.
 Ég læddist létt á tá
 til að líta gjafir á,
 hún hélt ég væri steinsofandi
 Stínu dúkku hjá.
 Ég sá mömmu kitla jólasvein
 og jólasveinninn út um skeggið hlær.
 já, sá hefði hlegið með,
 hann faðir minn hefð'ann séð
 mömmu kyssa jólasvein í gær.
 |     Gekk ég yfir sjó og land Gekk ég yfir sjó og landhitti þar einn gamlan mann.
 Sagði svo og spurði svo,
 hvar áttu heima.
 "Ég á heima á Klapplandi,
 Klapplandi, klapplandi.
 Ég á heima á Klapplandi,
 Klapplandinu góða."
 StapplandiHopplandi
 Grátlandi
 Hlælandi
 íslandi
 | 
   
    | Bráðum koma blessuð 
        jólin Bráðum koma blessuð jólin,börnin fara að hlakka til,
 Allir fá þá eitthvað fallegt,
 Í það minnsta kerti og spil.
 Hvað það verður veit 
        nú enginn,vandi er um slíkt að spá.
 Eitt er víst að alltaf verður
 ákaflega gaman þá
 Jóhannes úr kötlum
 Babbi segir, pabbi segir:
 "Bráðum koma dýrleg jól."
 Mamma segir, mamma segir:
 "Magga fær þá nýjan kjól."
 Hæ, hæ ég hlakka til
 hann að fá og gjafirnar:
 bjart ljós og barnaspil,
 borða sætu lummurnar.
 Benedikt Þ. Gröndal
 | Aðfangadagskvöld Nú er Gunna á nýju 
        skónum,nú eru að koma jól.
 Siggi e á síðum buxum,
 Solla á bláum kjól.
 Mamma er enn í eldhúsinu,eitthvað að fást við mat.
 Indæla steik hún er að færa
 upp á stærðar fat.
 Pabbi enn í ógnar basli,á með flibbann sinn.
 "Fljótur Siggi finndu snöggvast
 flibbahnappinn minn!"
 Kisu eitthvað órótt líka
 út fer brokkandi.
 Ilmurinn úr eldhúsinu
 er svo lokkandi.
 Á borðinu ótal bögglar 
        standa,bannað að gægjast í.
 Kæru vinir ósköp erfitt
 er að hlýða því.
 Jólatréð í stofu 
        stendurstjörnunrnar glampar á
 Kertin standa á grænum greinum,
 gul og rauð og blá.
 Ragnar Jóhannesson
     | 
   
    | Nú skal segja Nú skal segja, nú skal segja,hvernig litlar stúlkur gera:
 Vagga brúðum, vagga brúðum,
 og svo snúa þær sér í hring.
 Nú skal segja, nú skal segja;hvernig litlir drengir gera:
 Sparka bolta, sparka bolta,
 og svo snúa þeir sér í hring.
 Nú skal segja, nú skal segja,hvernig ungar stúlkur gera:
 Þær sig hneigja, þær sig hneigja,
 og svo snúa þær sér í hring.
 Nú skal segja, nú skal segja,hvernig ungir piltar gera:
 Taka ofan, taka ofan.
 og svo snúa þeir sér í hring.
 Nú skal segja, nú skal segja,hverngi gamlar konur gera:
 Prjóna sokka, prjóna sokka
 og svo snúa þær sér í hring.
 |       Göngum við í kringum Göngum við í kringum einiberjarunn,einiberjarunn, einiberjarunn,
 göngum við í kringum einiberjarunn,
 snemma á mánudagsmorgnni
 Svona gerum við,er við þvoum okkar þvott,
 þvoum okkar þvott,
 þvoum okkar þvott,
 svona gerum við,
 er við þvoum okkar þvott
 snemma á mánudagsmorgni.
 … snemma á þriðjudagsmorgni.Svona gerum við þegar við vindum okkar þvott.
 ..snemma á miðvikudagsmorgni.Svona gerum við er við hengjum okkar þvott.
 …snemma á fimmtudagsmorgni.Svona gerum við þegar við teygjum okkar þvott.
 …Snemma á föstudagsmorgni.Svona gerum við er við straujum okkar þvott.
 ..snemma á laugardagsmorgni.Svona gerum við er við skúrum okkar gólf.
 …snemma á sunnudagsmorgni.Svona gerum við er við greiðum okkar hár.
 …seint á sunnudagsmorgni.Svona gerum við er við göngum kirkjugólf.
 | 
   
    | Í skóginum stóð 
        kofi einn Í skóginum stóð 
        kofi einnsat við gluggan jólasveinn,
 þá kom lítið héraskinn,
 sem vildi komast inn.
 Jólasveinn ég treysti á þig,
 veiðimaður skýtur mig,
 komdu litla séraskinn,
 því ég er vinur þinn.
 Hrefna S. Tynes
 |   Skreytum hús með grænum 
        greinum Skreytum hús með grænum greinum
 fa lalalala lalalala.
 Gleði ríkja skal í bænum
 fa lalalala lalalala.
 Tendrum senn á trénu bjarta
 fa lalalala lalalala.
 Tendrum ljós í hverju hjarta
 fa lalalala lalalala.
 | 
   
    |    Aðventusálmur Við kveikjum einu kerti á.Hans koma nálgast fer,
 sem fyrstu jól í jötu lá
 og Jesú barnið er.
 Við kveikjum tveimur kertum á,og komu bíðum hans,
 því drottinn sjálfur soninn þá
 mun senda í líkingu manns.
 Við kveikjum þremur kertum á,því konungs beðið er,
 þótt Jesú sjálfur jötu og strá
 á jólum kysi sér.
 Við kveikjum fjórum kertum 
        á.Brátt kemur gesturinn,
 og allar þjóðir þurfa að sjá,
 að það er frelsarinn.
 (Lilja Kristjánsdóttir)
 |   Bjart er yfir Betlehem Bjart er yfir Betlehem,blikar jólastjarna.
 Stjarnan mín og stjarnan þín,
 stjarna allra barna.
 Var hún áður vitringum
 vegaljósið skæra.
 Barn í jötu borið var,
 barnið ljúfa, kæra.
 Víða höfðu vitringarvegi kannað hljóðir,
 fundið sínum ferðum á
 fjöldamargar þjóðir.
 Barst þeim allt frá Betlehem
 birtan undur skæra.
 Barn í jötu borið var,
 barnið ljúfa, kæra.
 Barni gjafir báru þeir.Blítt þá englar sungu.
 Lausnaranum lýstu þeir,
 lofgjörð Drottni sungu.
 Bjart er yfir Betlehem,
 blikar jólastjarna.
 Stjarnan mín og stjarnan þín,
 stjarna allra barna.
 Ingólfur Jónsson | 
   
    | Í Betlehem er barn oss fætt Í Betlehem er :,:barn oss fætt 
        :,:því fagni gjörvöll Adams ætt.
 :,:Halelúja:,:
 Það barn oss fæddi :,:fátæk 
        mær.:,:Hann er þó dýrðar Drottinn skær.
 :,:Halelúja:,:
 Hann var í jötu :,:lagður 
        lágt.:,:en ríkir þó á himnum hátt.
 :,:Halelúja:,:
 | Davíð 
      og Golíat |